NordicVisitor

WELCOME TO THE NORTH
Nordic Visitor er að leita...

Nordic Visitor
Nordic Visitor er ferðaskrifstofa sem skipuleggur fjölbreyttar og spennandi ferðir til allra Norðurlandanna. Við erum með starfsstöð á Íslandi og í Svíþjóð. Fyrirtækið er í örum vexti og býður upp á spennandi möguleika fyrir rétta aðila. Við bjóðum upp á góðan starfsanda, fjölbreytt verkefni, þægilega og nútímalega starfsaðstöðu í hjarta borgarinnar.

Sölustjóri - Norðurlönd
Nordic Visitor leitar eftir kraftmiklum, jákvæðum og metnaðarfullum starfsmanni á starfsstöð sína á Íslandi til að sinna uppbyggingu, sölu og markaðssetningu á ferðum til Íslands frá Norðurlöndum. Nordic Visitor vinnur nú að því að byggja upp vefsvæði á norsku, dönsku og sænsku og hefur hug á að leggja mjög aukna áherslu á markaðssetningu á Norðurlöndunum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi ferðaþjónustustarf á líflegum vinnustað.

Starfssvið:

  • Yfirumsjón með sölu ferða til Íslands frá Norðurlöndum
  • Samræming á sölu- og verkferlum sem snúa að komu ferðmanna frá Norðurlöndum
  • Markaðssetning á viðkomandi mörkuðum í samstarfi við markaðsstjóra fyrirtækisins
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Samskipti við birgja
  • Þróun og framsetning á nýrri þjónustu
  • Annað tilfallandi

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af störfum innan ferðaþjónustunnar
  • Reynsla af sölu- og/eða markaðsstörfum á viðkomandi mörkuðum er kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð kunnátta í einu eða fleiri af Norðurlandamálum
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð færni í textaskrifum er mikill kostur

Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi og hafa góða skipulagshæfileika.

Aðeins umsækjendur með reynslu af sölu/markaðsstarfi á viðkomandi mörkuðum og með mjög góða kunnáttu í einu af norðurlandamálunum koma til greina.

Um er að ræða nýtt starf innan fyrirtækisins og heyrir það undir Forstöðumann sölusviðs sem veitir frekari upplýsingar um starfið: Þóra Björk Þórhallsdóttir, forstöðumaður sölusviðs: thora@nordicvisitor.com

Umsóknarfrestur er til 4. febrúar 2012.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið iceland@nordicvisitor.com merkt "Sölustjóri - Norðurlönd".
FULLUM TRÚNAÐI HEITIÐ


Career

Interested in joining one of the fastest (and most certainly friendliest) travel and destination management companies in the region?

We are always on the lookout for talented and enthusiastic people with a head for business and a heart for service. Send us your CV and a cover letter telling us a little about yourself and what you can contribute to our Nordic Visitor family.

Your name:
Your email:
Subject:
Text:
Attachment:

Please enter the code above: (Click here if you can't see the code)

Check this out
Check this out
Check this out
WHY BOOK WITH US
- Tailor-made holidays
- Friendly local travel experts
- 24/7 support during stay
- Fully licensed & authorized

                               Read more...

An unforgettable travel experience